Skip to main content

How I Met Your Mother Efnisyfirlit Framleiðsla | Persónur & leikendur | Stutt ágrip þáttanna | Verðlaun og tilnefningar | Heimildir | Leiðsagnarvalb

How I Met Your MotherBandarískir sjónvarpsþættir


bandarískurCBSManhattanNew York borgJosh RadnorJason SegelCobie SmuldersAlyson HanniganNeil Patrick HarrisNew York-borgThe SoldisThe Big Bang Theory12. janúar2010Ted MosbyJosh RadnorMarshall EriksenJason SegelLily AldrinAlyson HanniganBarney StinsonNeil Patrick HarrisRobin ScherbatskyCobie SmuldersÞýskalandsSan FranciscoBob BarkerKaliforníukanadískArgentínuEnrique IglesiasSarah ChalkeBritney SpearsJapanRachel BilsonChicagoJennifer MorrisonKanadaNicole ScherzingerKal PennenskuWikipedia












How I Met Your Mother




Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu






Jump to navigation
Jump to search



































How I Met Your Mother

How i met your mother.jpg
Tegund

Gaman
Sjónvarpsstöð

CBS
Stöð 2
Leikarar

Josh Radnor
Jason Segel
Cobie Smulders
Neil Patrick Harris
Alyson Hannigan
Yfirlestur

Bob Saget sem framtíðar-Ted Mosby
Upphafsstef
„Hey Beautiful“ með The Solids
Tónlist
Transcenders
Land

Fáni Bandaríkjana Bandaríkin
Tungumál

Enska
Fjöldi tímabila
8
Fjöldi þátta
184
Framleiðsla

Framleiðslufyrirtæki
Carter Bays
Pamela Fryman
Rob Greenberg
Craig Thomas
Lengd þáttar
22 mín.
Útsending
Upprunaleg sjónvarpsstöð

CBS
Fyrsti þáttur í
September 2005
Sýnt
19. september 2005 –
Síðsti þáttur í

How I Met Your Mother (eða Svona kynntist ég móður ykkar) eru bandarískur gamanþættir sem voru frumsýndir á CBS stöðinni 19. september 2005. Höfundar þáttanna eru Craig Thomas og Carter Bays.


Þættirnir gerast á Manhattan, New York borg og fylgjast með félags- og ástarlífi Ted Mosby (Josh Radnor) og vina hans Marshall Eriksen (Jason Segel), Robin Scherbatsky (Cobie Smulders), Lily Aldrin (Alyson Hannigan) og Barney Stinson (Neil Patrick Harris). Rauði þráðurinn í þáttunum er sá að aðalpersónan, Ted, með rödd Bob Saget, segir syni sínum og dóttur árið 2030 frá atburðunum sem leiddu til þess að hann kynntist móður þeirra.


How I Met Your Mother hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda og hefur alla tíð fengið gott áhorf. Þátturinn hefur unnið sex Emmy-verðlaun, og auk þess tilnefningu sem „Framúrskarandi gamanþáttaröð“ (2009).


Tilkynnt var um 7. þáttaröðina í mars 2011 og hófust sýningar á henni 19. september 2011, en einnig var 8. þáttaröð staðfest. Þættirnir unnu áhorfendaverðlaun Bandaríkjanna árið 2012 í flokknum „Besta gamanþáttaröðin í sjónvarpi“ og Neil Patrick Harris var valinn besti leikari í gamanþætti.




Efnisyfirlit





  • 1 Framleiðsla


  • 2 Persónur & leikendur

    • 2.1 Aðalpersónur


    • 2.2 Aukapersónur



  • 3 Stutt ágrip þáttanna

    • 3.1 Fyrsta þáttaröð


    • 3.2 Önnur þáttaröð


    • 3.3 Þriðja þáttaröð


    • 3.4 Fjórða þáttaröð


    • 3.5 Fimmta þáttaröð


    • 3.6 Sjötta þáttaröð


    • 3.7 Sjöunda þáttaröð



  • 4 Verðlaun og tilnefningar


  • 5 Heimildir




Framleiðsla |


How I Met Your Mother er hugmynd Bays og Thomas, „skrifum um vini okkar og þá fáránlegu hluti sem við gerðum í New York“. Þeir byggðu á vináttu sinni við gerð persónanna, þar sem Ted er lauslega byggður á Bays, og Marshall og Lily lauslega byggð á Thomas og konu hans. Í fyrstu var kona Thomas, Rebecca, á móti því að hafa persónu byggða á sér í þáttunum, en samþykkti það ef þeir fengju Alyson Hannigan til að leika persónuna. Til allrar hamingju var Hannigan laus og var tilbúin til að leika í gamanþáttaröð.


Barinn „MacLaren's“, þar sem hluti þáttanna gerist, er byggður á bar í New York-borg sem heitir McGee's. Hann hefur ímynd sem Carter Bays og Craig Thomas voru báðir hrifnir af og vildu koma inn í þættina. Nafn barsins kemur frá aðstoðarmanni Carter Bays, Carl MacLaren, en eigandi barsins heitir einmitt Carl.


Venjulega er hver þáttur tekinn upp á yfir þremur dögum (flestir gamanþættir eru venjulega teknir á einum degi) og eru yfir 50 atriði í hverjum þætti með snöggum breytingum. Hláturs-upptakan er búin til seinna þegar áhorfendum er sýnd lokaútgáfa þáttarins. Vegna aukins gildissviðs þáttanna sagði Thomas að það væri ómögulegt að taka upp fyrir framan áhorfendasal. Seinni þáttaraðir hafa verið teknar upp fyrir framan áhorfendur við tilefni þar sem minna sett var notað.


Opnunarlagið er hluti af laginu „Hey Beautiful“ með The Soldis, en Bays og Thomas eru meðlimir hljómsveitarinnar. Þættirnir í fyrstu þáttaröðinni byrjuðu oftast með opnunarlaginu. „Köld opnun“ hefur verið notuð síðan í annarri þáttaröð. Áhorfendur sjá einstaka sinnum börn Teds sitjandi í sófa og heyra hann tala við þau þegar hann segir þeim söguna af því hvernig hann kynntist móður þeirra. Thomas hefur sagt að Framtíðar-Ted sé óáreiðanlegur sögumaður, þar sem hann er að reyna að segja sögur, sem gerðust 20 árum áður, og þess vegna misminnir hann stundum. Óáreiðanleiki hans hefur komið fram í þáttum eins og „The Goat“, „Oh, Honey“ og „The Mermaid Theory“. Atriði sem sýnir móður barnanna og börnin var tekið upp í byrjun annarrar þáttaraðar sem endalok þáttanna. Þetta var gert vegna þess að leikararnir verða orðnir fullorðnir þegar lok þáttanna verða.


Á meðan verkfalli bandarískra handritshöfunda stóð 2007-2008 hætti How I Met Your Mother framleiðslu, en þegar verkfallið endaði sneri þátturinn aftur þann 17. mars 2008 með níu nýja þætti. Það var einnig tilkynnt um tímabreytingar til að koma til móts við The Big Bang Theory. Samningar um fjórðu þáttaröðina voru undirritaðir 14. maí 2008 og fór nýja þáttaröðin í loftið 22. september 2008.


Í september 2008 tilkynnti Lifetime sjónvarpsstöðin að þeir hefðu keypt endursýningarréttinn á How I Met Your Mother og höfðu borgað 725.000 dali fyrir hvern þátt. Samkvæmt fjögurra ára áætlun á stöðin að vera búin að sýna 110 þætti árið 2010 og leyfir allt að átta þáttaraðir. Við lok fjórðu þáttaraðar höfðu aðeins 88 þættir verið framleiddir og þess vegna var stöðin tilneydd til þess að sýna að minnsta kosti 22 þætti til viðbótar og tryggði það fimmtu þáttaröðina. Þann 19. maí 2009 var fimmta þáttaröðin tilkynnt. Daginn eftir tilkynnti CBS að How I Met Your Mother færi aftur á sinn upphaflega sýningartíma til að rýma fyrir nýjum gamanþætti, Accidentally on Purpose. Þann 12. janúar 2010 var 100. þátturinn sýndur. Þá var einnig tilkynnt um sjöttu seríuna á CBS. Til að svara því að þátturinn væri að hætta sagði Craig Thomas: „Við erum mjög spenntir yfir því að þátturinn myndi lifa áfram" og að þeir væru stoltir af þættin og að það væri frábært að sjá að fólk vildi enn horfa. Þrátt fyrir það hafa leikarar þáttanna gefið það til kynna að ekki verði fleiri en átta þáttaraðir framleiddar.



Persónur & leikendur |


Aðalgrein: Persónur í How I Met Your Mother


Aðalpersónur |



  • Josh Radnor sem Ted Mosby


  • Jason Segel sem Marshall Eriksen


  • Cobie Smulders sem Robin Scherbatsky


  • Neil Patrick Harris sem Barney Stinson


  • Alyson Hannigan sem Lily Aldrin


  • Bob Saget sem Framtíðar-Ted Mosby (aðeins rödd)


Aukapersónur |



  • Lyndsy Fonseca sem dóttir Framtíðar-Ted Mosby (2005- )


  • David Henrie sem sonur Framtíðar-Ted Mosby (2005-)


  • Marshall Manesh sem Ranjit (2005-)

  • Jon Nieves sem barþjónninn Carl (2005-)

  • Charlene Amoia sem þjónustustúlkan Wendy (2005-11)

  • Bill Fagerbakke sem Marvin Eriksen Sr. (2005-)


  • Danica McKellar sem Trudy (2005-07)


  • Ashley Williams sem Victoria (2006, 2011)

  • David Burtka sem Scooter (2006-10)


  • Joe Manganiello sem Brad (2006-09)


  • Bryan Callen sem Bilson (2006-09)


  • Taran Killam sem Blauman (2006)


  • Alexis Denisof sem Sandy Rivers (2006, 2011-)


  • Wayne Brady sem James Stinson (2006-)


  • Bryan Cranston sem Hammond Druthers (2006-07)


  • Cristine Rose sem móðir Ted, Virgina Mosby (2006-)


  • Enrique Iglesias sem Gael (2007)


  • Sara Chalke sem Stella Zinman (2008-09)


  • Britney Spears sem Abby (2008)


  • Bob Odenkirk sem Arthur Hobbs (2008-)


  • Chris Romano sem Punchy (2008-)


  • Will Forte sem Randy Wharmpess (2008, 2010)


  • Frances Conroy sem Loretta Stinson (2009-)

  • Benjamin Koldyke sem Don Frank (2009-10)


  • Laura Prepon sem Karen (2009-10)


  • Chris Elliott sem Mickey Aldrin (2009, 2011, 2012-)


  • Rachel Bilson sem Cindy (2010, 2011)

  • Ben Vereen sem Sam Gibbs (2010-)


  • Jennifer Morrison sem Zoey Pierson (2010-11)

  • Laura Bell Bundy sem Becky (2010)


  • Kyle MacLachlan sem George "Kapteinninn" van Smoot (2010-11)

  • Nazanin Boniadi sem Nora (2011)


  • Katy Perry sem "Honey" (2011)


  • John Lithgow sem Jerome "Jerry" Whittaker (2011-)


  • Kal Penn sem Kevin (2011-12)


  • Martin Short sem Garrison Cootes (2011-)


  • Becki Newton sem Quinn (2012-)


Stutt ágrip þáttanna |



Fyrsta þáttaröð |


Aðalgrein: How I Met Your Mother (1. þáttaröð)

Árið 2030 sest Ted Mosby (Bob Saget talar fyrir hann) niður með börnunum sínum til að segja þeim söguna af því hvernig hann kynntist móður þeirra.




DVD-hulstur fyrstu þáttaraðarinnar


Sagan byrjar árið 2005, þegar Ted (Josh Radnor) er einhleypur, 27 ára arkitekt, sem býr með tveimur bestu vinum sínum úr háskóla; Marshall Eriksen (Jason Segel), lögfræðinema og Lily Aldrin (Alyson Hannigan), leikskólakennara, sem hafa verið saman í um níu ár, þegar Marshall biður hennar. Trúlofun þeirra veldur því að Ted fer að hugsa um hjónaband og að finna sálufélagann en það líst sjálfskipuðum besta vini hans, Barney Stinson (Neil Patrick Harris),ekki á. Barney er þekktur sem mikill kvennamaður og er starf hans óþekkt.


Ted byrjar þá að leita að sálufélaganum og hittir hann ungan hvatvísan fréttaritara, Robin Scherbatsky (Cobie Smulders), sem hann verður fljótlega ástfanginn af. Robin vill hinsvegar ekki fara of fljótt í samband og ákveða þau að vera vinir. Framtíðar-Ted segir börnunum sínum að hún sé ekki móðir þeirra með því að tala um hana við börnin sín sem „Robin frænku“.


Ted byrjar með bakarnum Victoriu sem hann hittir í brúðkaupi, og veldur það því að Robin verður afbrýðissöm og áttar sig á að hún ber tilfinningar til hans. Victoria flytur til Þýskalands á skólastyrk og reyna hún og Ted fjarsamband. Þegar Ted kemst að því að Robin er hrifin af honum, segir hann henni að hann sé hættur með Victroiu, þrátt fyrir að hann sé ennþá með henni. Þau enda næstum því í rúminu þegar Victoria hringir og Robin svarar óvart. Ted og Victoria hætta þá saman og Robin verður reið út í Ted en sættist síðan við hann og þau byrja saman.


Á meðan fer Lily að hugsa um hvort að hún hafi misst af einhverjum tækifærum vegna sambands sísn við Marshall, og ákveður hún að fara á listanámskeið í San Francisco og hættir með Marshall í kjölfarið. Þáttaröðin endar á því að Ted kemur aftur í íbúðina, eftir að hafa eytt nóttinni með Robin í fyrsta skipti og finnur Marshall sitjandi í rigningunni með trúlofunarhring Lily.



Önnur þáttaröð |




DVD-hulstur þáttaraðarinnar


Aðalgrein: How I Met Your Mother (2. þáttaröð)

Ted og Robin eru loksins saman og hryggbrotinn Marshall reynir að halda í lífinu án Lily. Lily áttar sig á að hún er ekki listamaður og snýr aftur til New York. Hún og Marshall byrja aftur saman og endar þáttaröðin á brúðkaupi þeirra. Barney tapar „slap bet“ sem leyfir Marshall að slá hann fimm sinnum hvenær sem er í framtíðinni, þegar Marshall vill, en það gerir hann tvisvar sinnum í þáttröðinni. Það kemur í ljós að Barney á svartan, samkynhneigðan bróður (Wayne Brady). Barney trúir því að Bob Barker sé faðir hans og fer hann til Kaliforníu til að taka þátt í þættinum The Price is Right. Síðan komast allir í hópnum að því að Robin var kanadísk poppstjarna í byrjun 10. áratugarins og átti smellinn, „Let's Go To The Mall“. Barney horfir margoft á tónlistarmyndband lagsins.


Í lokaþættinum, segir Ted Barney frá því að hann og Robin hafi ekki verið saman í nokkrun tíma, vegna mismunandi skoðana þeirra á hjónabandi. Þau sögðu ekki neinum frá því til að forðast það að draga athygli frá brúðkapi Marshalls og Lilyar. Barney endar þáttaröðina á orðunum „þetta verður sögu - bíddu eftir því“.



Þriðja þáttaröð |


Aðalgrein: How I Met Your Mother (3. þáttaröð)


Hulstur þáttaraðarinnar


Robin snýr aftur úr ferð til Argentínu með kærastanum Gael (Enrique Iglesias) og verður Ted að sætta sig við Robin er bara vinur hans. Marshall og Lily ákveða að flytja í sitt eigið húsnæði og verða ástfangin af íbúð sem þau hafa ekki efni á. Marshall kemst að því að Lily er haldin kaupæði og skuldi mikla peninga, sem kemur í veg fyrir að þau geti tekið hagstætt lán. Þrátt fyrir það geta þau keypt draumaíbúðina en komast þá að því að hún er illa staðsett og í mun verra ástandi en þau gerðu sér greinfyrir. Barney er sleginn í þriðja skiptið á þakkargjörðinni en Marshall kallar hátíðina „Slapsgiving“.


Ted segir börnunum sínum að hann hitti móður þeirra í gegum sögu af gulu regnhlífinni hennar. Hann finnur regnhlífina á klúbbi og tekur hana heim með sér eftir að hafa farið í partý á degi heilags Patreks þar sem framtíðar-konan hans var, þrátt fyrir að þau hafi ekki hist. Ted reynir að heilla Stellu (Sarah Chalke), húðsjúkdómalækni sem hann fer til vegna vandræðalegs húðflúrs. Þetta leiðir til eftirminnilegs tveggja mínútna stefnumóts, sem inniheldur samtal, kvöldmat, kvikmynd, kaffi, tvær leigubílaferðir og koss, allt á innan við tveimur mínútum. Robin sefur hjá Barney eftir að hann huggar hana eftir sambandsslit, sem leiðir til þess að Ted vill ekki vera vinur hans lengur. Eftir það ákveður Ted að vera ekki vinur Barneys lengur. Á meðan fer ókunnug kona að eyðileggja tilraunir Barneys til að næla í stelpur. Það reynist vra Abby (Britney Spears), ritari Stellu, en hún er fúl út í hann fyrir að hafa ekki hringt í hana eftir að þau sváfu saman.


Í lokaþættinum, eftir að Ted og Barney lenda í sitthvoru bílslysinu og lenda á spítala, endurnýja þeir vináttuna. Það kemur í ljós að Barney ber miklar tilfinningar til Robin og Ted biður Stellu að giftast sér.



Fjórða þáttaröð |


Aðalgrein: How I Met Your Mother (4. þáttaröð)

How i met your mother season 4.jpg


Stella játast Ted. Robin tekur nýju starfi í Japan en hættir fljótlega og snýr aftur til New York til að fara í brúðkaup Teds. Stella yfirgefur Ted við altarið og byrjar aftur með barnsföður sínum, Tony. Barney glímir við tilfiningar sínar í garð Robin þegar fyrirtækið hans setur hann í framkvæmdarhóp nýs fyrirtækis, Goliath National Bank (GNB).


Marshall og Lily flytja inn í nýju íbúðina og velta því fyrir sér hvort að þau séu tilbúin til að eignast börn. Robin verður sambýlingur Teds þegar hún fær starf sem stjórandi morgunþáttar sem fer í loftið klukkan fjögur á morgnana. Ted kemst að því að Barney er ástfanginn af Robin þegar Ted og Robin byrja að sofa saman til að koma í veg fyrir sífelldar deilur.


Ted kemst að því að Lily hefur eyðilagt öll sambönd hans með konum sem henni líkaði ekki við og gæti hafa hjálpað til við sambandsslit hans og Robin. Robin og Ted enda á því að tala um það, og verður það til þess að vinátta þeirra verður betri. Þegar Barney sefur loksins hjá 200. konunni, eftir að hafa nuddað því framan í strák sem stríddi honum þegar hann var yngri, hugsar hann um hvað hann eigi að gera það sem eftir er lífsins en það gerir hann enn vissari um tilfinningar sínar í garð Robin.


Þegar Ted er með gulu regnhlífina rekst hann á Stellu og Tony. Tony kemur seinna í heimsókn og vottar honum samúð sína eftir að hafa misst Stellu. Tony býður honum starf sem kennari í arkitektúr en Ted hafnar því.


Í lokaþættinum kemst Robin að því að Barney er ástfanginn af henni. Ted ákveður að hann sé hættur að vera arkitekt og ákveður að fara að kenna frekar. Lokaþátturinn endar á því að Ted er að undirbúa sig fyrir fyrsta tímann og Framtíðar-Ted segir að ein af konunum í bekknum sé móðir þeirra.



Fimmta þáttaröð |


Aðalgrein: How I Met Your Mother (5. þáttaröð)

Ted byrjar fyrsta daginn sinn sem kennari, standandi í miðri kennslustofu - þrátt fyrir að móðirin hafi verið þar, reynist þetta þó ekki vera arkitektatíminn sem hann átti að vera að kenna. Barney og Robin hafa átt í kynferðislegu samabandi um sumarið og Lily læsir þau inni í herbergi og neyðir þau til að ákvarða hvað samband þeirra er. Eftir erfiðan tíma ákveða þau að hætta saman. Robin lýsir þessu þó þannig að þau séu tveir vinir að byrja aftur saman. Barney snýr strax til eldri siða, og notar leikjabókina til að ná í konur. Í gegnum þáttaröðina sjást merki þess að Robin og Barney sjái eftir sambandinu.


Ted byrjar samband með nemanda sem heitir Cindy (Rachel Bilson) og kemur í ljós að herbergisfélagi hennar sé framtíðar-konan hans. Robin hittir Don, nýjan samstarfsmann í morgunþættinum. Þrátt fyrir að henni líki ekki við hann í fyrstu byrja þau saman eftir nokkurn tíma og flytja inn saman. Í lok seríunnar hætta þau saman þegar Don tekur starfi í Chicago, þrátt fyrir að Robin hafi hafnað starfinu til að geta verið með honum. Marshall lemur Barney í fjórða sinn, aftur á þakkargjörðinni. Ted kaupir hús, sem þarfnast mikilla viðgerða, en það kemur seinna fram að þetta er húsið sem Ted mun búa í með fjölskyldunni.


Lily og Marshall ræða hugmyndina um að eignast barn, þrátt fyrir að Lily sé óviss. Parið ákveður að láta það eiga sig þar til þau sjá síðasta tvífara hópsins. Að lokum sér Lily mann sem hún telur vera síðasta tvífarann, þó að restin af hópnum mótmæli því, sýnir það að þau eru bæði tilbúin til að eignast barn.



Sjötta þáttaröð |


Aðalgrein: How I Met Your Mother (6. þáttaröð)

Ted sér Cindy aftur með stelpu sem hann heldur að sé herbergisfélagi hennar en hún reynist vera kærasta Cindy sem hún giftist seinna. Það kemur fram að Ted hittir fyrst framtíðar-eiginkonu sína þegar hann þykist vera svaramaður í brúðkaupi (þar sem hann er úti í rigningunni án regnhlífar).


Lily verður reið þegar Marshall segir fjölskyldunni sinni að þau séu að reyna að eignast barn, en þau leysa úr sínum málum. Móðir Barneys ákveður að selja húsið sem hann ólst upp í. Á meðan hann pakkar niður hlutunum úr húsinu, sjá James og Barney ósent bréf til Sam Gibbs, sem verður til þess að þeir finna föður James. Loretta býður Barney að vita hver faðir hans sé en Barney rífur það eftir að hann áttar sig á því hverju Loretta hefur fórnað sem einstæð móðir.


Lily reynir að fá Robin til að eyða símanúmeri Dons og þrátt fyrir að það gerist ekki strax gleymir Robin að lokum númerinu og segist vera komin yfir sambandi. Nýi meðstjórnandi Robin, Becky, stelur kastljósinu og kemur það Robin í uppnám.


Ted hafnar tilboði frá Goliath National Bank um að hanna nýjar höfuðstöðvar bankans en samþykkir það seinna. Höfuðstöðvar GNB eiga að vera byggðar þar sem nú er gamalt hús, sem reyndar er kennileiti byggingarlistar. Þetta verður til þess að Ted lendir í deilum við Zoey (Jennifer Morrison), fallega konu sem er reið yfir því að rífa eigi kennileitið. Zoey skráir sig í tíma Teds og fær nemendur hans til liðs við sig til að bjarga byggingunni. Barney uppgötvar að maðurinn sem hann kallaði frænda sinn þegar hann var lítill er í rauninni faðir hans en biður Robin um að minnast ekki á það við neinn.


Robin segir sögu af gamalli vinkonu sinni frá Kanada, Jessicu Glitter (Nicole Scherzinger), og útskýrir að vinir vaxi í sundur. Ted sannar mál sitt með því að hringja í gamla vin sinn, Punchy, sem verður til þess að hann birtist í New York. Seinna biður hann Ted um að vera svaramaður í brúðkaupinu hans. Það virðist vera brúðkaupið í byrjun þáttaraðarinnar, þar sem Ted verður að halda ræðu, og þá bað Robin Ted um að vera svaramaðurinn í hennar brúðkaupi. Ted og vinir hans halda þakkargjörðina heima hjá Zoey og Ted og Zoey verða vinir, þrátt fyrir að þau beri miklar tilfinningar hvor til annars. Ted fer í bátsferð með eiginmanni Zoey, „Kapteininum“, á meðan „hafmeyjukenning“ Barneys hindrar Marshall í að eiga góðan kvöldverð með Robin. Þegar Marshall og Lily gætu verið ólétt hefur það djúpstæð áhrif á hópinn og neyðir þau til að endurskoða líf sín. Á meðan byrjar Robin í nýju starfi, Barney uppgötvar ánægjun sem fylgir því að gefa á jólunum og Ted byrjar á skyldum sínum fyrir brúðkaup Punchies.


Marshall grunar að hann sé ástæða þess að Lily verður ekki ólétt eftir að hafa farið á fund með frjósemislækni, sem einnig reynist vera tvífari Barneys. Hann kemst að því að hann er fullkomlega frjór og er mjög hamingjusamur en fær seinna þær slæmu fréttir að faðir hans sé dáinn. Hópurinn reynir að styðja Marshall og Lily reynir að hjálpa mömmu hans á meðan jarðaförinni stendur en Marshall hefur nóg að hugsa um þegar hann áttar sig á að hann á eftir ein hljóðskilaboð frá föður sínum. Barney hringir í móður sína og segir að hann sé loksins tilbúinn til að hitta alvöru föður sinn.


Ted er ástfanginn af Zoey, en þar sem Zoey er gift, slítur hann vináttunni. Zoey er líka ástfangin af Ted og sækir um skilnað frá eiginmanninum. Þar sem hvorugt veit hvernig hinu líður segir Marshall þeim það hvoru í sínu lagi og hann segir Ted líka frá skilnaði Zoey og þau kyssast.



Sjöunda þáttaröð |


Aðalgrein: How I Met Your Mother (7. þáttaröð)

Sjöunda þáttaröðin hefst með því að litið er inn í framtíðina þegar Ted er að hjálpa Barney að gera sig tilbúinn fyrir brúðkaupið sitt, en brúðurin er óþekkt. Í nútíðinni fær Marshall starf sem umhverfislögfræðingu á meðan Lily fæst við óléttuna. Barney sannar fyrir Noru að hann geti verið góður kærasti á meðan Robin ber enn tilfinningar til Barney. Robin fer í dómsskipaða meðferð, þar til sálfræðingurinn hennar, Kvein (Kal Penn), segir að honum finnist hún aðlaðandi og geti þess vegna ekki verið sálfræðingurinn hennar lengur. Þau byrja saman.


Þegar framtíðar Ted hugsar um fellibylinn Irene, kemur í ljós að Lily og Marshall gátu barnið sitt í íbúð Barney, og Barney og Robin sofa saman. Barney og Robin átta sig bæði á því sem þau hafa gert og ákveða að hætta í sínum ástarsambödnum. En Robin ákveður hins vegar að vera áfram með Kevin, sem veldur Barney miklum vonbrigðum þar sem hann hætti með Noru. Marshall og Lily ákveða að þau vilji flytja til Long Island, eftir að afi og amma hennar bjóða þeim húsið sitt þar.



Verðlaun og tilnefningar |

































































































Ár
Niðurstaða
Flokkur
Verðlaun
Viðtakandi/viðtakendur
2006VannFramúrskarandi vinnsla þáttaraðarEmmy-verðlaunStarfsfólk
VannFramúrskarandi kvikmyndataka í þáttaröðStarfsfólk
TilnefningUppáhalds Nýi GamanþátturinnPeoople's Choice-verðlaunLeikarar og starfsfólk
2007VannFramúrskarandi vinnsla þáttaraðarEmmy-verðlaunStarfsfólk
TilnefningFramúrskarandi klipping á þáttaröðStarfsfólk
TilnefningFramúrskarandi leikari í aukahlutverki í gamanþáttaröð
Neil Patrick Harris
TilnefningUppáhalds sjónvarpsleikari: GamanTeen Choice-verðlaun
Neil Patrick Harris
2008VannFramúrskarandi vinnsla þáttaraðarEmmy-verðlaunStarfsfólk
TilnefningFramúrskarandi leikari í gamanþáttaröð
Neil Patrick Harris
TilnefningUppáhalds stjarna sem stelur senunniPeople's Choice-verðlaun
Neil Patrick Harris
TilnefningUppáhalds sjónvarpsþáttur: GamanTeen Choice-verðlaunLeikarar og starfsfólk
TilnefningUppáhalds sjónvarpsleikari: Gaman
Neil Patrick Harris
2009TilnefningFramúrskarandi gamanþáttaröðEmmy-verðlaunStarfsfólk
TilnefningFramúrskarandi leikari í aukahlutverki í gamanþáttaröð
Neil Patrick Harris
VannFramúrskarandi vinnsla þáttaraðarStarfsfólk
TilnefningFramúrskarandi klipping á gamanþáttaröðStarfsfólk
TilnefningBesta frammistaða leikara í aukahlutverkiGolden Globe-verðlaun
Neil Patrick Harris
TilnefningUppáhalds gestastjarna sem stal senunniPeople's Choice-verðlaun
Britney Spears
2010TilnefningBesta frammistaða leikara í aukahlutverkiGolden Globe verðlaun
Neil Patrick Harris
VannUppáhalds leikkona í gamanþáttaröðPeople's Choice-verðlaun
Alyson Hannigan
TilnefningFramúrskarandi leikari í aukahlutverki í gamanþáttaröðEmmy verðlaun
Neil Patrick Harris
2011TilnefningUppáhalds sjónvarpsleikkonaPeople's Choice verðlaun
Alyson Hannigan
VannUppáhalds sjónvarpsleikariPeople's Choice verðlaun
Neil Patrick Harris


Heimildir |


Fyrirmynd greinarinnar var „How I Met Your Mother“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt febrúar 2011.










Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=How_I_Met_Your_Mother&oldid=1457533“













Leiðsagnarval



























(RLQ=window.RLQ||[]).push(function()mw.config.set("wgPageParseReport":"limitreport":"cputime":"0.128","walltime":"0.151","ppvisitednodes":"value":845,"limit":1000000,"ppgeneratednodes":"value":0,"limit":1500000,"postexpandincludesize":"value":9684,"limit":2097152,"templateargumentsize":"value":1906,"limit":2097152,"expansiondepth":"value":5,"limit":40,"expensivefunctioncount":"value":0,"limit":500,"unstrip-depth":"value":0,"limit":20,"unstrip-size":"value":0,"limit":5000000,"entityaccesscount":"value":0,"limit":400,"timingprofile":["100.00% 59.244 1 -total"," 45.22% 26.792 1 Snið:How_I_met_your_mother"," 40.87% 24.214 1 Snið:Navbox"," 35.16% 20.830 1 Snið:Sjónvarpsþáttur"," 13.55% 8.030 8 Snið:Aðalgrein"," 8.58% 5.082 1 Snið:USA"," 4.76% 2.822 1 Snið:Wpheimild"," 3.84% 2.277 1 Snið:Fáni-30px-svg"],"scribunto":"limitreport-timeusage":"value":"0.007","limit":"10.000","limitreport-memusage":"value":660368,"limit":52428800,"cachereport":"origin":"mw1326","timestamp":"20190822204704","ttl":2592000,"transientcontent":false););"@context":"https://schema.org","@type":"Article","name":"How I Met Your Mother","url":"https://is.wikipedia.org/wiki/How_I_Met_Your_Mother","sameAs":"http://www.wikidata.org/entity/Q147235","mainEntity":"http://www.wikidata.org/entity/Q147235","author":"@type":"Organization","name":"Contributors to Wikimedia projects","publisher":"@type":"Organization","name":"Wikimedia Foundation, Inc.","logo":"@type":"ImageObject","url":"https://www.wikimedia.org/static/images/wmf-hor-googpub.png","datePublished":"2009-01-20T21:38:04Z","dateModified":"2014-05-03T12:06:45Z","image":"https://upload.wikimedia.org/wikipedia/is/0/06/How_i_met_your_mother.jpg"(RLQ=window.RLQ||[]).push(function()mw.config.set("wgBackendResponseTime":160,"wgHostname":"mw1325"););

Popular posts from this blog

Invision Community Contents History See also References External links Navigation menuProprietaryinvisioncommunity.comIPS Community ForumsIPS Community Forumsthis blog entry"License Changes, IP.Board 3.4, and the Future""Interview -- Matt Mecham of Ibforums""CEO Invision Power Board, Matt Mecham Is a Liar, Thief!"IPB License Explanation 1.3, 1.3.1, 2.0, and 2.1ArchivedSecurity Fixes, Updates And Enhancements For IPB 1.3.1Archived"New Demo Accounts - Invision Power Services"the original"New Default Skin"the original"Invision Power Board 3.0.0 and Applications Released"the original"Archived copy"the original"Perpetual licenses being done away with""Release Notes - Invision Power Services""Introducing: IPS Community Suite 4!"Invision Community Release Notes

Canceling a color specificationRandomly assigning color to Graphics3D objects?Default color for Filling in Mathematica 9Coloring specific elements of sets with a prime modified order in an array plotHow to pick a color differing significantly from the colors already in a given color list?Detection of the text colorColor numbers based on their valueCan color schemes for use with ColorData include opacity specification?My dynamic color schemes

Tom Holland Mục lục Đầu đời và giáo dục | Sự nghiệp | Cuộc sống cá nhân | Phim tham gia | Giải thưởng và đề cử | Chú thích | Liên kết ngoài | Trình đơn chuyển hướngProfile“Person Details for Thomas Stanley Holland, "England and Wales Birth Registration Index, 1837-2008" — FamilySearch.org”"Meet Tom Holland... the 16-year-old star of The Impossible""Schoolboy actor Tom Holland finds himself in Oscar contention for role in tsunami drama"“Naomi Watts on the Prince William and Harry's reaction to her film about the late Princess Diana”lưu trữ"Holland and Pflueger Are West End's Two New 'Billy Elliots'""I'm so envious of my son, the movie star! British writer Dominic Holland's spent 20 years trying to crack Hollywood - but he's been beaten to it by a very unlikely rival"“Richard and Margaret Povey of Jersey, Channel Islands, UK: Information about Thomas Stanley Holland”"Tom Holland to play Billy Elliot""New Billy Elliot leaving the garage"Billy Elliot the Musical - Tom Holland - Billy"A Tale of four Billys: Tom Holland""The Feel Good Factor""Thames Christian College schoolboys join Myleene Klass for The Feelgood Factor""Government launches £600,000 arts bursaries pilot""BILLY's Chapman, Holland, Gardner & Jackson-Keen Visit Prime Minister""Elton John 'blown away' by Billy Elliot fifth birthday" (video with John's interview and fragments of Holland's performance)"First News interviews Arrietty's Tom Holland"“33rd Critics' Circle Film Awards winners”“National Board of Review Current Awards”Bản gốc"Ron Howard Whaling Tale 'In The Heart Of The Sea' Casts Tom Holland"“'Spider-Man' Finds Tom Holland to Star as New Web-Slinger”lưu trữ“Captain America: Civil War (2016)”“Film Review: ‘Captain America: Civil War’”lưu trữ“‘Captain America: Civil War’ review: Choose your own avenger”lưu trữ“The Lost City of Z reviews”“Sony Pictures and Marvel Studios Find Their 'Spider-Man' Star and Director”“‘Mary Magdalene’, ‘Current War’ & ‘Wind River’ Get 2017 Release Dates From Weinstein”“Lionsgate Unleashing Daisy Ridley & Tom Holland Starrer ‘Chaos Walking’ In Cannes”“PTA's 'Master' Leads Chicago Film Critics Nominations, UPDATED: Houston and Indiana Critics Nominations”“Nominaciones Goya 2013 Telecinco Cinema – ENG”“Jameson Empire Film Awards: Martin Freeman wins best actor for performance in The Hobbit”“34th Annual Young Artist Awards”Bản gốc“Teen Choice Awards 2016—Captain America: Civil War Leads Second Wave of Nominations”“BAFTA Film Award Nominations: ‘La La Land’ Leads Race”“Saturn Awards Nominations 2017: 'Rogue One,' 'Walking Dead' Lead”Tom HollandTom HollandTom HollandTom Hollandmedia.gettyimages.comWorldCat Identities300279794no20130442900000 0004 0355 42791085670554170004732cb16706349t(data)XX5557367